Fćrsluflokkur: Tónlist

Algjörlega óvísindaleg könnun á vinsćldum

Ég hef oft velt ţví fyrir mér hvers vegna íţróttir (sem ég stunda mikiđ, sérstaklega körfubolta) eru svona fyrirferđamiklar í prentmiđlum á međan menning og listir eiga erfitt uppdráttar. Reyndar aukast skrifin mikiđ á ađventunni ţegar bókaútgefendur keppast viđ ađ koma nýjustu bókunum fyrir framan neytendur.

Ég viđurkenni ađ ţađ er mun meira spennandi ađ lesa um Ísland gera nćstum jafntefli í handboltaleik en lesa gagnrýni um nýjustu sýninguna eđa nýjustu bókina sem var ađ koma út. Líklega er ţađ ein af skýringunum, lesendur og kaupendur auglýsinga vilja spennu. Ég sakna samt meiri umfjöllunar um listir, sérstaklega umfjöllunar um myndlist í blöđum og tímaritum.

Hin óvísindalega könnun mín á vinsćldum menningar fór fram hér á síđum Moggabloggsins. Ég var ađ vafra um bloggflokkana og sá ađ fyrir aftan hvern flokk er fjöldi fćrsla í sviga. Ţađ kom mér á óvart ađ fćrslur um íţróttir eru ekki nema rúmlega 1400 og ţađ er međ enska boltanum sem ţó er međ sérstaka sjónvarpsstöđ til ađ koma sér á framfćri hér á landi. Menning og listir eru aftur á móti međ rúmlega 2000 fćrslur og ef viđ tökum tónlistina međ, rúmlega 3200 fćrslur, eđa nćstum tvöfalt meira en íţróttirnar.

Kannski eru lesendur íţróttafrétta bara svona uppteknir viđ áhorfiđ og lesturinn ađ ţeir hafi ekki tíma til ţess ađ skrifa um áhugamál sín, en kannski, já kannski hefur hinn almenni bloggari einfaldlega meiri áhuga á menningum og listum ýmis konar.

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband