Gott verð fyrir Jón Stefánsson

Jón StefánssonVerk eftir Jón Stefánsson var selt á uppboðsvefnum Lauritz.com á um það bil 4,8 milljónir króna með álögðum gjöldum. Verkið sem er málað 1913 og merkt Jón Stefánsson var slegið á 320.000 danskar krónur en á það leggst 25% uppboðs- og höfundarréttargjald.

Þetta er líklega hæsta verði sem greitt hefur verið fyrir verk eftir Jón Stefánsson en tvö verk eftir hann verða boðin upp á listmunauppboði Gallerís Foldar næst komandi sunnudagskvöld í Súlnasal Hótel Sögu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband